HARBOUR
restaurant & bar
OPNUNARTÍMI
MÁNUDAGA - FÖSTUDAGA
12:00 - 21:00
LAUGARDAGA - SUNNUDAGA
18:00 - 21:00
ELDHÚSIÐ LOKAR 20:30
Um okkur
Í langan tíma hefur sárvantað veitingastað á Skagaströnd og það fór svo að tvenn hjón úr staðnum ákváðu að hætta að bíða og tóku málin í sínar eigin hendur. Það eru hjónin Birna Sveinsdóttir og Slavko Velemir ásamt hjónunum Hafdísi Hrund Ásgeirsdóttur og Stefáni Sveinssyni sem nú hafa látið draum sinn og annarra bæjarbúa rætast og opnað veitingastaðinn Harbour restaurant&bar.
Með tilkomu veitingahússins býðst íbúum og gestum bæjarins loksins tækifæri til þess að gera sér glaðan dag og njóta góðs matar og drykkjar með fjölskyldu og vinum í notalegu umhverfi. Boðið er upp á metnaðarfulla matargerð og áhersla lögð á að vinna sem mest með hreinar afurðir beint frá býli og bryggju.
Harbour restaurant&bar er staðsettur í gömlu iðnaðarhúsnæði á höfninni þar sem hjarta bæjarins slær. Þar má upplifa taktinn í bryggjulífinu og fylgjast með þegar bátar leggjast að og landa afla dagsins.
Starfsfólk Harbour restaurant&bar býður ykkur öll velkomin með brosi á vör.



Okkur þætti vænt um að heyra frá þér!
Vertu með okkur á þínum uppáhalds samfélagsmiðli eða sendu okkur tölvupóst.
555-0545 | harbour@simnet.is